Uppskeruhátið hestamanna fór fram á Broadway laugardaginn 5. nóvember og var mikið um dýrðir. Þetta var stórt ár í keppnishestamennskunni og því mörgu að fagna þegar árið er gert upp.
Dagskrá kvöldsins var hefðbundin. Haraldur Þórarinsson bauð gesti hjartanlega velkomna og setti hátíðina formlega. Að því búnu var komið að veislustjóra kvöldins, Halldóri Gylfasyni leikara að taka við stjórninni.
Heiðursverðlaun fyrir ötul og óeigingjörn störf í þágu hestamennskunnar á Íslands vor að þessu sinni veitt tveimur einstaklingum sem ætíð hafa lagt mikið af mörkum innan hreyfingarinnar. Þetta voru þeir Kári Arnórsson og Haraldur Sveinsson. Verðlaunin fyrir ræktun keppnishesta kom í hlut Baldvins Ara Guðlaugssonar og Ingveldar Guðmundsdóttur og Guðlaugs Arasonar og Snjólaugar Baldvinsdóttur en þau kenna ræktun sína við Efri-Rauðalæk í Hörgárdal. Þau hafa um áratugaskeið ræktað hross og notað í sinni ræktun bæði góðar merar af þekktum ættbogum hér á landi, sem og ávallt bestu stóðhesta landsins. Segja má að hryssan Kvika frá Brún hafi verið mikill happafengur fyrir búið og gaf hún 11 afkvæmi og 7 þeirra hafa hlotið góð eða mjög góð fyrstu verðlaun, m.a. Ljósvaka frá Akureyri, Drottningu, heimsmeistarann Hraunar og Krók frá Efri-Rauðalæk.
Annað viðtal við Baldvin Ara
Wednesday, 02 November 2011 20:05
There are no translations available.
Baldvin var gripinn í viðtal á dögunum af fréttamanni Hestafrétta.
Viðtal við Baldvin Ara
Tuesday, 06 September 2011 00:05
There are no translations available.
Hestafréttir spjallaði við Baldvin Ara Guðlaugsson um Landsmótshald, sölumál og útflutning.
Íslandsmetið í 250 metra skeiði
Monday, 05 September 2011 23:55
There are no translations available.
Prins frá Efri-Rauðalæk og Valdimar Bergstað slógu Íslandsmetið í 250 metra skeiði á Meistaramóti Andvara nú um helgina en þeir fóru á tímanum , 22,43 sekúndum,en gamla metið átti Flosi frá Keldudal og Sigurbjörn Bárðarson 22,47 sek. Prins er undan Galsa frá Sauðárkróki.
Fákaflug 2011
Saturday, 30 July 2011 13:09
There are no translations available.
Eftir forkeppnina í tölti á Fákaflugi 2011 er Baldvin Ari á Senjori frá Syðri-Ey í 14-15 sæti með 6,17 og Ágústa á Logari frá Möðrufelli í 20 sæti með 5,87. Í A-flokk mætir Baldvin til leiks með Jökull frá Efri-Rauðalæk og Frama frá Efri-Rauðalæk. Í B-flokk mætir hann með Senjor frá Syðri-Ey. Í unglingaflokkinn mætir Ágústa með Logar frá Möðrufelli. Í 100 metra skeiðið eru það svo Drómi frá Syðri-Brennihóli og Jökull frá Efri-Rauðalæk sem Baldvin ætlar að taka til kostanna.
Heimsmeistarar
Sunday, 07 August 2011 15:49
There are no translations available.
Þá er það staðfest að heimsmeistararnir koma frá Efri-Rauðalæk. Magnús Skúlason og Hraunar frá Efri-Rauðalæk urðu heimsmeistarar í fimmgangi í Austurríki. Glæsilegur árangur hjá þeim.